SSNV tekur þátt í alþjóðlegu verkefni

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra taka nú þátt í alþjóðlegu samstarfsverkefni sem nýlega hlaut styrk úr sjóði Norðurslóðaverkefna. Verkefni þessu er ætlað að taka á ýmsum áskorunum sem fyrirtæki á jaðarsvæðum kunna jafnan að glíma við, svo sem smæð markaðar, fjarlægð frá markaði og einangrun. Frá þessu er sagt á vef SSNV.

Meðal markmiða með samstarfinu er að þróa nýjungar í stafrænum markaðs- og söluhugbúnaði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og aðstoða þau við að nýta sér stafræna möguleika. Einnig er stefnt að því að þátttaka í verkefninu stuðli að alþjóðlegum vexti fyrirtækja sem byggja á líffræðilegum auðlindum svæðisins; fisk, landbúnaði, skógrækt og öðrum tengdum iðnaði. Aðrir þátttakendur í verkefninu eru atvinnuþróunarfélögin WESTBIC og ICBAN, landshlutasamtökin Udaras na Gaeltachta og háskólarnir University of Ulster á Norður-Írlandi og Karelia University í Finnlandi.

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi, sóttu fyrsta fund verkefnisins sem haldinn var í Galway dagana 13.-14. nóvember. Þar var farið yfir skipulag komandi mánuða og drög að verkáætlun listuð upp. Áætlað er að kynna verkefnið fyrir hugsanlegum þátttakendum og öðrum hagsmunaaðilum á næstu vikum. Udaras na Gaeltachta leiðir verkefnið og Sveinbjörg Pétursdóttir er verkefnisstjóri verkefnisins fyrir SSNV

Fleiri fréttir