Stólastúlkur úr leik

Stólastúlkur þurftu að láta í minni pokann fyrir Keflavík í úrslitarimmu liðanna í fyrstu deild á Sauðárkróksvelli í gær. Leikurinn var lengi vel jafn og spennandi og lítið markvert sem gerðist fyrr en stundarfjórðungur var eftir af fyrri hálfleik en þá fengu gestirnir fyrsta færi leiksins sem þó ekki nýttist þeim. Þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik gerðu Keflvíkingar harða hríð að marki heimamanna og áttu skot í stöng, síðan þverslá og loks varði nýr markmaður Stólanna, Friðný Fjóla Jónsdóttir, skot gestanna.

Stólunum tókst lítið að skapa sér færi og leikurinn fór að mestu fram á miðju vallarins en á 54. mínútu breyttist það þegar Sveindís Jane Jónsdóttir kom gestunum yfir eftir aukaspyrnu og 10 mínútum síðar bætti hún öðru marki við.

Nokkuð var um pústra og gul spjöld og þurfti Kasey Wyer að yfirgefa völlinn eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald á 69. mínútu. Það var eins og heimastúlkur hresstust við mótlætið og börðust af krafti en engin dauðafæri náðu þær þó að skapa sér og ekkert skagfirskt mark leit dagsins ljós. Það voru keflvísku stúlkurnar sem gerðu hins vegar út um leikinn þegar Amber Pennybaker skoraði þriðja mark þeirra og þar við sat og fara þær áfram í úrslitakeppnni.

Dómarar leiksins áttu heldur dapran dag og margir dómar óskiljanlegir. Toppnum var náð þegar Arnar Skúli þjálfari Stólanna var rekinn upp í stúku af línuverði og sat þar dágóða stund þangað til dómari gaf honum leyfi til að snúa aftur á hliðarlínuna. En dómurunum skal samt ekki kennt um tapið því gestirnir voru heldur sterkari og sköpuðu sér fleiri marktækifæri.

„Tvö góð lið að berjast: Þær augljóslega búnar að spila á hærra leveli en við en riðillinn okkar var lélegur í sumar. Held að það hafi skilið á milli. Við byrjuðum með tvo varnarsinnaða miðjumenn og í seinni hálfleik ákvað ég að breyta og færa leikmenn framar og það riðlaði varnarleiknum okkar aðeins þegar við stigum ofar á völlinn. Það kemur með æfingu. Við þurfum að fá fleiri leiki til að vinna í okkar málum fyrir næsta tímabil,“ segir Arnar Skúli Atlason þjálfari liðsins. Með framhald um þjálfun segist hann vonast til að fá að halda áfram með liðið. „Það býr margt í þessu liði og frábærar stelpur og ég vona bara að sem flestar verði áfram.“

Leikskýrslu má sjá HÉR

Fleiri fréttir