Stóra upplestrarkeppnin í Skagafirði
feykir.is
Skagafjörður
27.03.2019
kl. 12.27
Stóra upplestrarkeppnin var haldin í átjánda sinn í Skagafirði í gær. Tólf nemendur úr öllum grunnskólum Skagafjarðar öttu kappi og stóðu sig með stakri prýði. Nemendur úr Tónlistarskóla Skagafjarðar léku fyrir gesti og vinningshafar frá síðasta ári stýrðu samkomunni af mikilli röggsemi.
Hátíðin var öll hin skemmtilegasta og nemendur sjálfum sér og skólum sínum til mikils sóma. Verðlaunahafar að þessu sinni voru Njála Rún Egilsdóttir og Patrekur Rafn Garðarsson úr Grunnskólanum austan Vatna sem lentu í 1. og 2. sæti, og Katrín Sif Arnarsdóttir úr Árskóla sem var í 3. sæti.