Svaraðu hreystikallinu og taktu þátt í Mottumars

Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum, hófst formlega í gær, 1. mars. Í ár leggja fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar og karlakórar málstaðnum lið með því að flytja lagið Hraustir menn, þar á meðal Álftagerðisbræður og Karlakórinn Heimir.

Keppendur í Mottumars, einstaklingar jafnt sem lið, hafa skráð sig til leiks á vefsíðunni www.mottumars.is og safna þar áheitum til styrktar átakinu. Hægt er að finna aðila eftir búsetu til að heita á en þarna má m.a. finna Karlakórinn Heimi undir Varmahlíð, Jón Árna Magnússon undir Blönduósi, og Hjalta Árnason og Pálínu Ósk Ómarsdóttur undir Sauðárkróki.

Ár hvert greinast tæplega 750 íslenskir karlar með krabbamein, samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins. Algengust eru krabbamein í blöðruhálskirtli, lungum og ristli (ristli og endaþarmi). Tæpur helmingur þeirra sem greinast eru á aldrinum frá 40 til 69 ára en meðalaldur við greiningu er um 67 ár.

Hver og einn getur gert ýmislegt til að draga úr líkum á að fá krabbamein, til dæmis með því að reykja ekki, hreyfa sig reglulega, borða hollan og fjölbreyttan mat, takmarka neyslu áfengis og varast óhófleg sólböð. Því fyrr sem sjúkdómurinn greinist, því meiri líkur eru á lækningu.

 http://youtu.be/liB4ZHb_HsA

Fleiri fréttir