Svavar Knútur í Sauðárkrókskirkju
Tónlistarmaðurinn og Skagfirðingurinn, Svavar Knútur Kristinsson, verður með tónleika í Sauðárkrókskirkju á morgun 13. mars klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og er miðaverð 2990 kr. Eru þeir liður í fjáröflun hjá 3. flokki kvenna Tindastóls sem stefnir á að fara í knattspyrnuskóla til Spánar í sumar.
Að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur, skipuleggjanda tónleikanna, ætlar Svavar Knútur að leggja allt sitt í söfnunina því hann ætlar ekkert að taka fyrir viðvikið og má ætla að þar ráði tengsl hans við aðila innan hópsins og ekki síst Fjörðinn fagra.
Allir eru hvattir til að mæta og minnt er á að ekki verður posi á staðnum.
Svavar Knútur svaraði spurningum í Tón-lystinni í Feyki og var birt á Feyki.is 2017 og hægt að sjá HÉR