Sveitarfélög skoða hvernig bregðast skuli við vegna skaðsemi dekkjakurls á sparkvöllum

Sparkvöllurinn í Varmahlíð er einn af fjórum í Sveitarfélaginu Skagafirði. Mynd: Feykir/KSE
Sparkvöllurinn í Varmahlíð er einn af fjórum í Sveitarfélaginu Skagafirði. Mynd: Feykir/KSE

Eins og Feykir fjallaði um fyrir helgi eru sveitarfélög á Norðurlandi vestra nú að skoða hvernig bregðast skuli við skaðsömu efnainnihaldi dekkjakurls sem notað er sem uppfyllingarefni á gervigrasvöllum.

Slíka velli er að finna á flestum þéttbýlisstöðum og eru þeir vinsæl leiksvæði barna og gjarnan staðsettir við grunnskóla. Í Blönduósbæ er til að mynda einn sparkvöllur, á skólalóð Blönduskóla. Umræða hefur verið í byggðaráði Blönduósbæjar um að fjarlægja dekkjakurlið af sparkvellinum en frekari ráðstafanir eða tímasetningar ekki verið ákveðnar, að sögn Arnars Þórs Sævarssonar, bæjarstjóra þar.

Í Sveitarfélaginu Skagafirði eru til að mynda fjórir sparkvellir, á Hofsósi, Hólum, Sauðárkróki og í Varmahlíð. „Það liggur fyrir að skipta þarf um á völlunum leiði rannsókn í ljós að kurlið innihaldi skaðsöm efni og hvað eigi að nota í staðinn. Ekki hefur verið gefin út tímasett áætlun um hvernig staðið verði að því en verður gert um leið og meiri upplýsingar liggja fyrir,“ sagði Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri í samtali við Feyki.

Greint var frá svörum sveitarstjóra í Húnaþingi vestra, Húnavatnshreppi og á Skagaströnd, við fyrirspurn Feykis um málið, í frétt sem birtist hér á vefnum sl. föstudag.  

Fleiri fréttir