Sveitasæla um helgina
Hin árlega landbúnaðarsýning og bændahátíð Sveitasæla 2014 verður haldin í Skagafirði um næstu helgi. Að vanda er boðið upp á fjölbreytta dagskrá frá morgni til kvölds í Reiðihöllinni Svaðastöðum á laugardeginum en á sunnudeginum verða opin bú víðs vegar um Skagafjörð.
Það er Sara Reykdal sem fer með framkvæmdarstjórn sýningarinnar í ár. Segir hún dagskrána vera með frekar hefðbundnu sniði og að vanda verði margt að sjá og skoða. Svæðið opnar klukkan tíu á laugardagsmorgni en hátíðin verður sett klukkan ellefu. Hlé verður svo gert á dagskrá eftir sýningu á stórvirkum vinnuvélum kl. 17 en leikar hefst aftur með kvöldvöku kl. 19:30 þar sem bændafitness, keppni á milli búgreinafélaga og söng og skemmtiatriði verða á dagskrá.
Á sunnudaginn kl. 11-16 gefst svo tækifæri til að skoða býli í firðinum þar sem stundaður er fjölbreyttur búskapur. Þá verður opið hús hjá Mjólkursamlagi KS á sama tíma. Sögusetur íslenska hestsins verður opið frá kl. 13-17 á laugardeginum. /KSE