Tashawna Higgins sagt upp – Dúfa Dröfn tekin við liðinu

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur sagt upp samningi sínum við Tashawna Higgins þjálfara og leikmann Mfl. kvenna. Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir hefur tekið við þjálfun liðsins.

„Vonar stjórn kkd að fólk virði þessa ákvörðun stjórnar og horfi á þetta með björtum augum enda mikill efniviður til staðar til að halda úti meistaraflokksliði. Eru leikmenn liðsins margir hverjir ungir að árum og telur stjórn kkd að Dúfa sé rétta manneskjan til að stýra liðinu,“ segir í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeildinni.

Í tilkynningunni segir að ekki sé verið að leita eftir öðrum erlendum leikmanni. „Telur stjórn kkd að stelpurnar sem eru hér til staðar fái núna flott tækifæri og meiri spilatíma sjálfar án erlends leikmanns. Vill stjórn kkd þakka Tashawna fyrir samstarfið og um leið óska henni alls hið besta í framtíðinni,“ segir loks í tilkynningunni.

Fleiri fréttir