Tengslanet frumkvöðlakvenna á Norðurlandi vestra

Á þriðjudaginn í næstu viku er konum sem hafa áhuga á að koma hugmyndum sínum á framfæri, hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd eða hafa nýlega stofnað fyrirtæki boðið á fund í Verknámshúsi FNV á Sauðárkróki klukkan 19:30.
Fundurinn er upphaf tengslanetamyndunar kvenna á Norðvesturlandi til að efla starfssemi, verði vettvangur til fræðslu, stuðnings og nýrra tækifæra á svæðinu. Er þetta partur af verkefninu Free, sem er styrkt af Evrópusambandinu, og er aðalmarkmið verkefnisins að aðstoða frumkvöðlakonur á landsbyggðinni til að koma hugmyndum sínum og fyrirtækjum á framfæri með fræðslu og hvatningu auk þess að efla tengslanet kvenna. Verkefnið er tilraunaverkefni og verður í boði í fimm löndum sem eru auk Íslands, Bretland, Króatía, Litháen og Búlgaría. Sjónum er einkum að landssvæðum sem hafa glímt við fábreytni í atvinnulífi og búið við neikvæða byggðaþróun og mun fræðslan á Íslandi verða í boði á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi.
Fundinum verður stýrt af Lilju Gunnlaugsdóttur, en fór hún í haust til Sheffield og sótti fræðslu fyrir tengslanetaleiðtoga allra landanna í verkefninu. Á námskeiðinu var fræðsla um tengslanet sem hafa verið sett upp í dreifðum byggðum á Bretlandi, fræðslu um þjálfun og kennslu en auk þess var farið í fyrirtækjaheimsóknir í Peak District héraðið þar sem fyrirtæki kvenna á svæðinu voru heimsótt. Auk Lilju fóru þær Bryndís Sigurðardóttir, Ísafirði og Anna Katrín Svavarsdóttir, Egilsstöðum sem munu vinna við eflingu tengslaneta á Vestfjörðum og Austurlandi.
Á fundinum mun Sólveig Olga Sigurðardóttir, atvinnuráðgjafi hjá SSNV, fara yfir hvernig er best að vinna í styrktarumsóknum fyrir Uppbyggingarsjóð, en opið er fyrir umsóknir í sjóðinn til 29. nóvember. Lilja hvetur konur á Norðvesturlandi til að mæta á fundinn, kynnast og eiga góða kvöldstund og leggur hún áherslu á að allar konur í fyrirtækjarekstri séu velkomnar.
„Eftir að hafa stofnað sjálf fyrirtæki, fann ég frá fyrsta degi hve mikilvægt það er að geta leitað til annarra, fá ráð, gefa ráð og talað við fólk sem er í sömu sporum og maður sjálfur. Með því að nýta styrk hvors annars og þekkingu kemur út sterk heild sem allir græða á. Ég vonast til að tengslanetið styrki þá sem eru fyrir með fyrirtækjarekstur og gefi þeim sem eru í startholunum eða með hugmynd kjark til að taka stökkið og framkvæma, sem bætir atvinnulíf og þar af leiðandi mannlífið á svæðinu,“ segir Lilja.