Það besta við að búa á Norðurlandi vestra

Mynd:ssnv.is
Mynd:ssnv.is

Fyrir skömmu var efnt til leiks á Facebook síðu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, þar sem fólk var beðið um að skrá í athugasemd það sem því líkaði best við að búa á Norðurlandi vestra. Þátttaka í leiknum var mjög góð, að því er segir á vef SSNV og voru ástæðurnar fjölbreyttar þó rauði þráðurinn hafi verið fólkið og náttúran.

Athugasemdirnar voru teknar saman og búið til orðaský yfir það sem fram kom. Stærð orðanna segir til um hversu oft þau komu fyrir. „Það er nauðsynlegt að minna sig á þau forréttindi sem við búum við á Norðurlandi vestra. Þau sjást glöggt á orðaskýinu," segir á vef SSNV.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir