Þórarinn sigraði fimmganginn í KS-Deildinni
Fimmgangskeppni KS-Deildarinnar fór fram miðvikudagskvöldið 11. apríl í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Góðir hestar voru skráðir til leiks og áttu menn von á skemmtilegri kvöldstund á Króknum, samkvæmt facebook-síðu KS-Deildarinnar.
„Það kom glöggt í ljós að fimmgangskeppni innanhús er brothætt keppnisgrein. Knapar sem fyrirfram var reiknað með að stæðu sig vel gerðu mistök sem urðu til þess að þeir komust ekki alla leið. Efstir eftir forkeppni urðu Þórarinn og Narri. Þeir áttu jafna og góða sýningu og hefur hesturinn mikla útgeislun. Greinilegt er að Þórarinn er á réttri leið með Narra,“ segir á síðunni.
Efstur inn í B-úrslit var Elvar Einarsson á hryssunni Gátu og þar stutt á eftir kom liðsfélagi hans Tryggvi Björnsson á stóðhestinum Kná. Bæði Gáta og Knár eru frá Ytra-Vallholti.
Fjórði inní B-úrslit varð Gísli Gíslason með Karl frá Torfunesi og gerðu þeir félagar sér lítið fyrir og sigruðu B-úrslitin. Gísli sýndi að venju fágaða reiðmennsku og jafnar gangtegundir hestsins skiluðu þeim alla leið í A-úrslit.
Í A-úrslit mættu fimm 1. verðlauna hross, fjórir stóðhestar og ein hryssa.
Þórarinn og Narri virtust frekar eflast og var snemma nokkuð ljóst að erfitt yrði að velta þeim úr sessi. Enda fór það svo að þeir sigruðu með einkunnina 7,69.
Teitur Árnason kom annar inn í A-úrslit með ungan og stórefnilegan hest, Óskahring frá Miðási. Sýndu þeir mjög skemmtilega takta en lenti Teitur í smá brasi með skeiðið. Óskahringur er hestur sem vert er að fylgjast með í framtíðinni. Þeir félagar urðu í þriðja sæti með einkunnina 6,76.
Þriðja inn í A-úrslitin kom Líney María með gæðinginn Kunningja frá Varmalæk. Stóðu þau fyrir sínu en erfiðleikar á brokki urðu til þess að Líney fór niður í fimmta sætið með einkunnina 6,45.
Fjórða inn í A-úrslit var Hallfríður með hryssuna Kolgerði. Þar er á ferðinni par sem lengi hefur verið á keppnisvellinum og ávalt staðið fyrir sínu. Það var einnig að þessu sinni og flott reiðmennska Hallfríðar og frábærlega útfærðir skeiðsprettir skiluðu þeim í annað sætið með einkunnina 7,17.
Gísli Gíslason sem kom uppúr B-úrslitum hélt áfram með hnökralausa sýningu og hlutu þeir fjórða sætið og einkunnina 6,67.
„Gaman er að segja frá því að hrossin í fyrsta og öðru sæti, Narri og Kolgerður eru bæði frá Vestri-Leirárgörðum. Þess má og til gamans geta að eigendur stóðhestana Kunningja og Óskahrings eru bræðurnir Björn og Gísli Sveinssynir frá Varmalæk,“ segir á síðunni.
Loks segir að mjög góð aðsókn hefur verið á fyrstu mót KS-Deildarinnar í vetur en næst veður töltið sem haldið verður 25. mars.
Staðan er eftirfarandi:
Einstaklingskeppni:
- Þórarinn Eymundsson/Hrímnir 34 stig
- Valdimar Bergstað/Hrímnir 31 stig
- Líney María/Hrímnir 26 stig
- Hanna Rún/Íbess Gæðingur 25,5 stig
- Elvar Einarsson/Hofstorfan/66° 23 stig
- Teitur Árnason/TopReiter 23 stig
- Bjarni Jónasson/Hofstoefan/66° 22,5 stig
- Hallfríður S.Óladóttir/TopReiter 19 stig
- Lilja Pálmadóttir/Hofstorfan/66° 18 stig
- Mette Mannseth/Þúfur/Draupnir 16 stig
Liðakeppni:
- Hrímnir 91 stig
- Hofstorfan/66°norður 76,5 stig
- TopReiter 60 stig
- Þúfur/Draupnir 44 stig
- Íbess-Gæðingur 43,5 stig
- Efri-Rauðalækur/Lífland 33 stig