Þreksporti gert gagntilboð í Borgarflöt 1a

Húsnæðið sem um ræðir er lengst til vinstri í húsinu, þar sem áður var Tónlistarskóli Skagafjarðar.
Húsnæðið sem um ræðir er lengst til vinstri í húsinu, þar sem áður var Tónlistarskóli Skagafjarðar.

Byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi sl. fimmtudag að gera fyrirtækinu Þreksport gagntilboð í húseignina Borgarflöt 1a. Hljóðaði það upp á 48 milljónir króna og hefur verið gengið að því.  

Upphaflega bárust fimm tilboð í eignina. Það lægsta hljóðaði upp á 18 milljónir en hæsta boð kom frá IG Ferðum ehf. og hljóðaði það upp á 51 milljón. Fyrirtækið féll síðan frá tilboði sínu og var þá ákveðið að gera næstbjóðanda, Þreksport ehf., áðurnefnt gagntilboð.

Eftirfarandi tilboð bárust:

Sigurpáll Þ. Aðalsteinsson og Kristinn T. Björgvinsson f.h. óstofnaðs félags: 18.000.000

Kaupfélag Skagfirðinga: 22.500.000

Kiwanisklúbburinn Drangey: 30.000.000

Þreksport ehf.: 46.000.000

IG Ferðir ehf.: 51.000.000

Fleiri fréttir