Þverárfjallsvegur lokaður
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
31.01.2020
kl. 09.40
Vetrarfærð er nú í öllum landshlutum en mikið hefur snjóað á Norðurlandi í nótt. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er unnið að hreinsun. Þegar þetta er skrifað, um kl. hálf tíu, hefur Þverárfjallsveginum verið lokað sem og Ólafsfjarðarmúla þar sem er snjóflóðahætta.
Víðast hvar er snjóþekja eða hálka, þungfært í Útblönduhlíð og á Siglufjarðarvegi sunnan Fljóta. Ófært er á Siglufjarðarvegi um Almenninga en mokstur stendur yfir. Hált er á Holtavörðuheiði og skafrenningur.
Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með veðri og færð áður en lagt er í ferðalög.