„Þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn“

Jón Þór Jósepsson gæðastjóri hjá Mjólkursamlagi KS tók þessa mynd en hann afhenti Agnari og Ragnhildi blómvönd í tilefni þess að mjólkurframleiðsla er hafin á ný á Stóru-Ökrum 2.
Jón Þór Jósepsson gæðastjóri hjá Mjólkursamlagi KS tók þessa mynd en hann afhenti Agnari og Ragnhildi blómvönd í tilefni þess að mjólkurframleiðsla er hafin á ný á Stóru-Ökrum 2.

Nú í haust hófu þau Ragnhildur Jónsdóttir og Agnar Gíslason mjólkurframleiðslu á Stóru Ökrum 2 í Blönduhlíð í Skagafirði, en hún hafði þá legið niðri á bænum í tíu ár. Þau hafa gert lagfæringar og endurbætur á fjósinu og ætla að leggja áherslu á kúabúskap til að byrja með.

Ragnhildur er komin aftur á æskuheimilið en Agnar, sem er kjötiðnaðarmaður, er frá Álftagerði í Skagafirði, svo bæði eru þau á heimaslóðum. Foreldrar Ragnhildar búa einnig á Stóru-Ökrum og byggðu þau sér lítið íbúðarhús á jörðinni og fluttu í það.

„Þetta er þriðja árið okkar hérna. Við höfum verið að mynda okkur skoðun um hvað við ætlum að búa með og ákváðum að drífa okkur í mjólkurframleiðsluna,“ sagði Ragnhildur þegar Feykir hafði samband við hana í síðustu viku.

„Pabbi hætti að mjólka 2005 og þá var enginn tilbúinn að taka við, en svo æxlaðist það þannig að við fórum í sveitina. Við erum bara rétt að byrja en hér er pláss fyrir 72 kýr,“ sagði Ragnhildur og bætti við að í millitíðinni hefði verið kjötframleiðsla á bænum en faðir hennar hefur verið með eldi á nautkálfum. Ragnhildur og Agnar eru einnig með 100 kindur og hún segir að búskapurinn leggist vel í þau: „Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn, alla vega þangað til annað kemur í ljós.“ 

 

Fleiri fréttir