Tónleikar um áramót með Karlakórnum Heimi

Hinir árlegu áramótatónleikar Karlakórsins Heimis verða venju samkvæmt í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Að þessu sinni fara þeir fram laugardaginn 28. desember og hefjast kl. 20:30 að staðartíma. 

Það er Stefán R. Gíslason sem stjórnar kórnum en undirleikari er Thomas R. Higgerson. Kórinn mun flytja úrval eldri og yngri laga. Ræðumaður að þessu sinni er Gísli Einarsson, Lunddælingur og Landastjórnandi, og mun hana vafalítið slá á létta og laglega strengi eins og hans er vísa.

Forsala aðgöngumiða er í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki og í verslun Olís í Varmahlíð. Einnig er möguleiki að nálgast miða í KS Hofsósi. Miðasala ku ganga vel en enn er þó hægt að nálgast miða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir