Tveir í einangrun vegna Covid-19 á Norðurlandi vestra

Samkvæmt tölum aðgerðastjórnar almannavarna á Norðurlandi vestra frá því í gær eru tveit einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 í umdæminu, báðir á Hvammstanga, og sami fjöldi sem situr í sóttkví, annar á Hvammstanga en hinn á Sauðárkróki. Þar með hafa 33 af 35 náð bata af veikinni og 468 manns lokið sóttkví.

„Þetta sameiginlega verkefni okkar allra landsmanna er farið að líta betur út, en betur má ef duga skal og við verðum að standa í lappirnar. Það má heldur ekki breytast þrátt fyrir að 4. maí renni upp því að takmarkanir verða áfram ýmsar eftir það. Þetta er langhlaup sem að allir verða að taka þátt í,“ segir í tilkynningu frá aðgerðarstjórninni sem einnig minnir á smitrakningaappið sem að hægt er að nálgast meðal annars á covid.is.

Alls sæta 460 einstaklingar einangrun á Íslandi samkvæmt tölum af covid.is frá því í gær og liggja 28 á sjúkrahúsi, fjórir á gjörgæslu. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru níu látin.

Fleiri fréttir