Tvö stigahæstu liðin taka þátt í KS-Deildinni
Á föstudagskvöld fór fram úrtaka fyrir KS-Deildina 2016. Fjögur lið voru skráð til leiks og keppt var í fjórgangi og fimmgangi og tóku tveir knapar úr hverju liði þátt í hvorri grein. Búið var að auglýsa eitt laust sæti í deildinni en ákvað stjórn KS-Deildarinnar að bjóða tveimur stigahæstu liðunum þátttöku eftir kvöldið.
Sigurvegarar kvöldsins var lið skipað þeim Flosa Ólafssyni, Hlyni Guðmundssyni og Sinu Scholz. Einnig komst áfram lið skipað Agnari Þór Magnússyni, Guðmundi Tryggvasyni og Þór Jónsteinssyni.
Úrslit kvöldsins:
Fjórgangur
- Flosi Ólafsson - Rektor frá Vakurstöðum - 6,20
- Viðar Bragason - Stirnir frá Skriðu - 6,17
- Guðmundur Tryggvason - Rósalín frá Efri-Rauðalæk - 6,13
- Hlynur Guðmundsson - Hugleikur frá Galtanesi - 6,10
- Agnar Þór Magnússon - List frá Syðri-Reykjum - 5,83
- Baldvin Ari Guðlaugsson - Öngull frá Efri-Rauðalæk - 5,37
- Jóhanna Friðriksdóttir - Frami frá Stóru-Ásgeirsá - 5,17
- Sveinn Brynjar Friðriksson - Vígablesi frá Djúpadal - 5,0
Fimmgangur
- Þór Jónsteinsson - Kjarkur frá Skriðu - 6,17
- Jóhanna Friðriksdóttir - Frenja frá vatni - 6,07
- Sina Scholz - Nói frá Saurbæ - 5,97
- Hlynur Guðmundsson - Orka frá Ytri-Skógum - 5,93
- Höskuldur Jónsson - Þokki frá Sámsstöðum - 5,73
- Viðar Bragason - Þórir frá Björgum - 5,33
- Guðmundur Tryggvason - Díva frá Steinnesi - 5,27
- Sveinn Brynjar Friðriksson - Glóðafeykir frá Varmalæk - 5,13
Keppniskvöld KS-Deildarinnar í vetur
- 17. febrúar - Fjórgangur
- 2. mars - Fimmgangur
- 16. mars - Tölt
- 30. mars - Gæðingafimi
- 6. apríl - Slaktaumatölt og skeið.
/Fréttatilkynning frá Meistaradeild Norðurlands