Unnur Valborg kynnti framkvæmd sóknaráætlana í Wales

Unnur Valborg Hilmarsdóttir heldur erindi um framkvæmd sóknaráætlana á ráðstefnu í Wales. Mynd:ssnv.is
Unnur Valborg Hilmarsdóttir heldur erindi um framkvæmd sóknaráætlana á ráðstefnu í Wales. Mynd:ssnv.is

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sótti á dögunum ráðstefnu sem haldin var á vegum OECD í Wales. Var ráðstefnan hugsuð fyrir welska ráðamenn en þar á bæ er uppi nokkur óvissa um fjármagn til svæðisbundinnar þróunar vegna Brexit þar sem stór hluti fjármuna í slík verkefni hefur komið frá Evrópusambandinu. Ennfremur er vilji til að leita leiða til að marka skýrari stefnu í landinu í tengslum við byggðaþróun og einfalda stjórnsýslu málaflokksins.

Fulltrúar OECD héldu erindi á ráðstefnunni en þeir hafa verið welsku ríkisstjórninni til ráðgjafar um framangreind verkefni. Til ráðstefnunnar voru jafnframt fengnir erlendir sérfræðingar til að halda erindi um stefnumótun svæðisbundinnar þróunar og framkvæmd hennar á þeirra svæðum og var Unnur í þeirra hópi, hinir voru frá Þýskalandi, Svíþjóð og Írlandi en sérstaklega var beðið um erindi frá Íslandi þar sem framkvæmd sóknaráætlana landshlutanna þykir áhugaverð leið sem reynst hefur vel.

Að sögn Unnar var ráðstefnan í heild áhugaverð, að því er fram kemur á vef SSNV. Unnur segir að ánægjulegt hafi verið að sjá að til Íslands sé litið sem dæmis um árangursríka framkvæmd og ljóst að nokkur árangur hafi náðst í einföldun í málaflokkunum, aukins gegnsæis í meðförum þeirra og ekki síst þátttöku íbúa í mörkun stefnu landshlutanna og framkvæmd hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir