Úrslitaleikur Drengjaflokks sýndur beint á SportTV.is
Leikið verður til úrslita í öllum flokkum Bikarkeppni KKÍ í Laugardalshöll um helgina, 20.-22. febrúar. Drengjaflokkur Tindastóls verður á staðnum en þeir hafa átt mikilli velgengni að fagna undanfarið, eins á greint var frá á Feyki.is í vikunni. Drengirnir keppa á móti Haukum á morgun og hefst leikurinn kl. 19.00.
Þess má geta að leikir mótsins verða sýndir í beinni útsendingu á SportTV.is. Eftir leik verða viðtöl tekin við leikmann og eða þjálfara.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
FÖSTUDAGUR · 20. FEBRÚAR
18.30 10. flokkur kvenna KEFLAVÍK - ÁRMANN/HRUNAMENN
20.30 Stúlknaflokkur HAUKAR - KEFLAVÍK
LAUGARDAGUR · 21. FEBRÚAR
09.30 10. flokkur karla HAUKAR - KR
13.30 Mfl. kvenna KEFLAVÍK - GRINDAVÍK
16.00 Mfl. karla STJARNAN - KR
19.00 Drengjaflokkur HAUKAR - TINDASTÓLL
SUNNUDAGUR · 22. FEBRÚAR
10.00 9. flokkur karla HAUKAR - STJARNAN
12.00 9. flokkur kvenna GRINDAVÍK - KEFLAVÍK
14.00 11. flokkur karla KR - GRINDAVÍK/ÞÓR Þ.
16.00 Unglingafl. kvenna HAUKAR - KEFLAVÍK
18.00 Unglingafl. karla NJARÐVÍK – FSu