Vatnslaust í Barmahlíð og Háuhlíð
Enn er komin upp bilun í hitaveitunni. Að þessu sinni í dælustöð við Víðihlíð. Því mun þurfa að loka fyrir vatnið í Barmahlíð og Háuhlíð fram eftir degi, segir í tilkynningu sem barst frá Skagafjarðarveitum rétt í þessu.
Skagafjarðarveitur harma óþægindi sem af þessu hljótast.
