Vilja aukin framlög til málaflokka mikilvæga fyrir byggðaþróun

Úr Fljótunum. Ljósm./KSE
Úr Fljótunum. Ljósm./KSE

Landshlutasamtök á öllu landinu, þar á meðal Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, hafa sent áskorun til ráðherra og alþingismanna að tryggja við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 að aukin framlög verði til nokkurra  málaflokka sem samtökin telja gríðarlega mikilvæga fyrir byggðaþróun til framtíðar.

Málaflokkarnir eru eftirfarandi:

  • Þjónusta við fatlað fólk
  • Samningar um sóknaráætlun
  • Samgöngumál (nýframkvæmdir, viðhald og þjónusta)
  • Almenningssamgöngur
  • Ljósleiðaravæðing

„Landshlutasamtökin eru sem fyrr reiðubúin til að leggjast á árar með sínum kjörnu fulltrúum og ríkisvaldinu við að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Það verður þó ekki gert nema vilji til þess sjáist í fjárlagafrumvarpinu gagnvart þessum lykilmálum,“ segir í áskoruninni, undirrituð öllum landshlutasamtökunum.  

 

Fleiri fréttir