„Viljum aðstoða fólk í gegnum allt sem fylgir því að greinast með krabbamein“

María Reykdal er starfsmaður Krabbameinsfélags Skagafjarðar. Mynd: KSE
María Reykdal er starfsmaður Krabbameinsfélags Skagafjarðar. Mynd: KSE

Um þessar mundir er að ljúka bleikum októbermánuði, en hann hefur undanfarin ár verið helgaður vitundarvakningu um krabbamein, meðal annars með sölu á Bleiku slaufunni og með því að lýsa byggingar með bleikum ljósum. María Reykdal sálfræðingur og garðyrkjubóndi á Starrastöðum í Skagafirði er starfsmaður Krabbameinsfélags Skagafjarðar. Feykir heimsótti hana í síðustu viku og spjallaði við hana um störf hennar og starfsemi Krabbameinsfélagsins.

„Við höfum reynt að einbeita okkur að þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Við styrkjum fjárhagslega þá sem eiga ekki rétt til sjúkradagpeninga eða eru búnir að fullnýta þann rétt. Veikindum fylgja mikil útgjöld og fólk dettur út af vinnumarkaði. Þá höfum við hlaupið undir bagga með því að styðja fólk fjárhagslega,“ segir María m.a. í opnuviðtali í nýjasta tölublaði Feykis.

 

Fleiri fréttir