Vinnufélagar Jóns Halls hafa stofnað styrktarreikning
Vinnufélagar Jóns Halls Ingólfssonar, starfsmann Arionbanka á Sauðárkróki, hafa opnað styrktarreikning til að styðja hann í baráttu við krabbamein. Eftirfarandi tilkynning barst Feyki frá þeim:
„Síðan Jón Hallur vinnufélagi okkar veiktist alvarlega í febrúar höfum við fylgst með aðdáun að hetjulegri baráttu hans og fjölskyldunnar við þennan vágest, krabbameinið. Við höfum nú stofnað styrktarreikning númer 0310-22-819 kt. 101157-4159 fyrir þá sem vilja leggja honum lið. Þessi einstaki og hjartahlýi maður er oft fyrstur til að aðstoða aðra, betri vin er ekki hægt að hugsa sér. Við vitum að margir gleðjast yfir að fá tækifæri til að hjálpa honum á endasprettinum í lyfjagjöfinni, þetta er alveg að hafast. Áfram Jón Hallur.“