Yfir 3000 miðar seldir á Landsmót hestamanna

Frá Landsmótssvæðinu á Hólum í Hjaltadal. Ljósm./BÞ
Frá Landsmótssvæðinu á Hólum í Hjaltadal. Ljósm./BÞ

Rúmlega 3000 miðar eru seldir á Landsmót hestamanna sem fer fram á Hólum í Hjaltadal dagana 27. júní - 3. júlí. Að sögn Áskels Heiðars Ásgeirssonar hefur miðasalan gengið framar björtustu vonum. „Við ætluðum okkur að selja 1200 miða sem hefði verið tvöföldun á fjölda miða í forsölu frá síðasta móti.  Núna eru hinsvegar seldir miðar á mótið komnir yfir 3.000, langflestir þeirra eru vikupassar,“ segir Áskell Heiðar. Um 70% kaupenda eru íslenskir en um 30% erlendis frá.    

Áskell Heiðar segir erfitt að geta sér til um gestafjölda mótsins á þessari stundu en ef vel tekst til, og að veðurguðirnir brosi við landsmótsgestum, væri gott að fá 10.000 gesti. „Við verðum viðbúin ýmsu í þeim efnum, getum tekið við fleirum og erum undir það búin að þeir verði færri. En auðvitað erum við bjartsýn og þessi frábæra forsala gefur okkur gott start inn í árið.“  

Áskell Heiðar segir ágætlega hafa gengið að finna gistingu fyrir gesti mótsins enn sem komið er en það er Anna Lilja Guðmundsdóttir hjá North West Adventures sem hefur annast það að miðla gistiplássum. 

„Þessi mikla aðsókn núna kallar á að allir þeir sem hafa hug á að leigja íbúðir, hús, hjólhýsi, fellihýsi og annað slíkt stígi fram núna – við erum með fólk sem bíður, fólk sem er komið með miða og vill borga sanngjarna upphæð fyrir góðan aðbúnað. Margir sem ég hef rætt við hafa hugsað um að leigja frá sér en hafa ekki tekið af skarið, núna er tíminn!“ segir hann. 

Áskell Heiðar segir að nú fari allir þættir skipulagsferilsins á fullt. „Við erum búin að skoða flesta þætti í skipulaginu vel og rýna í reynslu síðustu móta, núna fer allt á fullt. Á næstu dögum birtast drög að dagskrá mótsins þar sem við kynnum ákveðnar nýungar, við tilkynnum fyrirkomulag á hesthúsaplássum, kynnum nýjan starfsmann sem mun sjá um markaðssvæðið hjá okkur, setjum sérstök tjaldstæði með rafmagni í sölu og svo mætti lengi telja.  Það er nóg að gera og spennandi tímar framundan,“ sagði hann að lokum. 

Fleiri fréttir