Yfirlögregluþjónn ósáttur vegna fyrirspurna um kvörtun á hans hendur

Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá embætti Lögreglunnar á Norðurlandi vestra skrifar í færslu á Facebooksíðu sinni um mál sem er í gangi og hefur verið síðan síðasta vetur er varðar kvörtun manns sem heimsótti hann á lögreglustöðina á Sauðárkróki. Eftir nokkurt þref þeirra á milli yfirgaf maðurinn skrifstofuna mjög ósáttur. Í kjölfarið barst erindi frá nefnd um eftirlit um störf lögreglu þar sem fram kom að kvörtun hafi borist frá manninum þess efnis að Stefán Vagn væri að misnota aðstöðu sína á lögreglustöðinni til að ræða málefni sveitarfélagsins og embættið beðið um afstöðu til kvörtunarinnar. Lesa má úr færslu Stefáns, þar sem fjölmiðlafólk sé farið að spyrjast fyrir um málið, að einhver tenging sé við mál embættis Ríkislögreglustjóra sem verið hefur í fréttum undanfarið.

Færsla Stefáns er eftirfarandi:

„Ég tjái mig nú alla jafnan ekki mikið á þessum vettvangi en nú langar mig að upplýsa ykkur.

Síðasta vetur kom á lögreglustöðina á Sauðárkrók maður í afgreiðsluna og óskaði eftir að fá að ræða við mig á skrifstofu minni. Er þetta maður sem ég þekki og við settumst niður og tókum tal saman. Fljótlega var ljóst að erindi mannsins væri tengt störfum mínum fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Ég tjáði honum eftir að hann hafði borið upp erindi sitt að málið þyrfti að ræðast á öðrum vettvangi og á öðrum tíma. Tók hann því mjög illa, varð mjög æstur og barði í borð og henti hlutum niður á skrifstofunni. Tjáði ég manninum að ljóst væri að við kæmust ekki lengra með samtalið og óskaði eftir að hann yfirgæfi skrifstofuna sem hann neitaði að gera. Eftir nokkurt þref yfirgaf maðurinn skrifstofuna og fór, mjög ósáttur.

Nokkru síðar barst embætti lögreglunnar á Norðurlandi vestra erindi frá nefnd um eftirlit um störf lögreglu þar sem fram kom að kvörtun hafi borist frá manninum þess efnis að ég væri að misnota aðstöðu mína á lögreglustöðinni til að ræða málefni sveitarfélagsins og embættið beðið um afstöðu til kvörtunarinnar.

25. júní 2019 svaraði lögreglustjóri erindinu eftirfarandi „ … telur lögreglustjóri ekki efni til að aðhafast frekar í því m.v. málavexti.“

Umrædd kvörtun hefur ekki verið endanlega afgreidd af hálfu nefndarinnar en von er á niðurstöðu í næsta mánuði. Það er ljóst að ég og umræddur maður ræddum málefni sveitarfélagsins á skrifstofu minni en erindið vissi ég ekki fyrr en þangað var komið. Ég hef þau 11 ár sem ég hef verið yfirlögregluþjónn ekki lagt það í vana minn að spyrja fólk um erindið í afgreiðslu lögreglustöðvarinnar þar sem oft á tíðum eru um erfið og viðkvæm mál að ræða.

Ástæða þess að ég rita þetta nú er sú að mér hefur borist til eyrna að ákveðnir aðilar séu farnir að spyrjast fyrir um þetta mál, þessa kvörtun, með það leiðarljósi að birta í fjölmiðlum.

Þau rúmu 22 ár sem ég hef starfað í lögreglu hefur aldrei nema í þetta eina skipti verið kvartað undan störfum mínum á þeim vettvangi þrátt fyrir aðkomu mína af mörgum erfiðum og flóknum málum.

Sú umræða sem uppi hefur verið um bílamál lögreglunnar hafa ekki farið fram hjá neinum og hef ég aldrei legið á skoðun minni í þeim efnum, að tími bílamiðstöðvar hafi runnið sitt skeið á enda og breytinga sé þörf. Nú liggur fyrir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um niðurlagningu bílamiðstöðvar frá og með næstu áramótum sem að mínu mati er hagfeld lögreglunni í landinu.

Ég velti því hinsvegar fyrir mér hvaða ástæður liggja að baki því að nú á þessum tímapunkti séu aðilar farnir að veita þessu máli athygli. Svari hver fyrir sig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir