Öskudagur framundan og kötturinn sleginn úr tunnunni
feykir.is
Skagafjörður, Það var lagið
24.02.2020
kl. 08.26
Öskudagsskemmtun foreldrafélags Árskóla fer fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki miðvikudaginn 26. febrúar klukkan 13:30 – 1:30. Á skemmtuninni verður margt um að vera og allir velkomnir.
Meðal þess sem vænta má að gerist er að kötturinn verður leginn úr úr tunnunni, söngatriði þar sem krakkar skrá sig á staðnum, leikir, andlitsmálning, og karamelluregn.
Fleiri fréttir
-
Fær hrylling þegar hún heyrir Uptown Funk / FANNEY BIRTA
„Fanney Birta Þorgilsdóttir heiti ég og bý í Síðu á Hofsósi með Fandam kærasta mínum og Ísak Abdiqani, sjö mánaða stráknum okkar. Fanney Birta, sem er fædd árið 1996, ólst upp á Hofsósi. Pabbi minn heitir Þorgils Heiðar Pálsson og er frá Eyrarlandi í Deildardal og mamma mín heitir Harpa Kristinsdóttir og er fædd á Dalvík en hefur búið á Hofsósi meira og minna allt sitt líf. Ég á fjögur systkini og tvær yndislegar stjúpsystur. Stórfjölskylda!“ Þannig er nú það en hvaða erindi á Fanney Birta í að svara Tón-lystinni?Meira -
Sunddeild Tindastóls og þjálfaraskortur | Hildur Þóra Magnúsdóttir skrifar
Sunddeild Tindastóls hefur verið ómetanlegur hluti af samfélagi okkar á undanförnum árum, bæði sem hluti afíþróttaiðkun barna og sem stuðningur við heilsueflandi samfélag á svæðinu. Með samstöðu stjórnar, foreldra og þjálfara hefur sunddeildin opnað dyr fyrir unga iðkendur til að læra sundtækni og stunda heilsusamlega hreyfingu frá upphafi grunnskólagöngu. Hins vegar hefur skortur á sundþjálfurum í haust orðið til þess að enn hefur ekki verið hægt að hefja sundæfingar fyrir yngstu hópanna.Meira -
Heilbrigð sál í hraustum líkama | Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 09.11.2024 kl. 15.18 oli@feykir.isGrundvallar þörf hverrar fjölskyldu frá vöggu til grafar er traust aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Það vill Flokkur fólksins tryggja. Þarfir okkar sem einstaklinga og fjölskyldna eru ekki alltaf fyrirsjáanlegar og þegar veikindi verða, hvort sem um er að ræða varanleg veikindi, slys, fötlun, andleg sem líkamleg eða umönnun aldraðra og öryrkja þá viljum við að þeim þörfum sé mætt sem best í heimabyggð.Meira -
Verkefnin eru flest langhlaup
Um miðjan október fór fram áttunda haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og var fundað í félagsheimilinu á Blönduósi. Á fundinum var kynnt til sögunnar ný Sóknaráætlun Norðurlands vestra og þá sendi fundurinn frá sér átta ályktanir. Formaður stjórnar SSNV er Einar Eðvald Einarsson sem einnig er forseti sveitarstjórnar Skaga-fjarðar. Feykir sendi Einari nokkrar spurningar varðandi hlutverk SSNV, sem margir kannski þekkja ekki, og eitt og annað tengt þeim ályktunum sem haustþingið sendi stjórnvöldum.Meira -
Skyndiákvörðun að skjótast í viðskipta- og ævintýraferð til Arabíu og Kína
Á Sauðárkróki er rekið fyrirtæki sem kallast Filmbase upp á enska tungu og þar er unnið með nýjustu tækni og útfærslur í gluggafilmum af ýmsu tagi. Það eru bræðurnir Óli Björn og Fannar Orri Péturssynir sem eiga fyrirtækið en Óli Björn er raunar mjólkurfræðingur að mennt og vinnur alla jafna hjá Mjólkursamlagi KS. Þeir bræður eru af kynstofni Narfa og þar virðast oft vera fleiri klukkutímar í sólarhringnum en hjá okkur hinum. Foreldrar piltanna eru Regína Jóna Gunnarsdóttir og Pétur Ingi Björnsson. Á dögunum fóru Óli Björn og Fannar skotferð til Kína með tveimur stoppum í Arabíu og höfðu föðurinn með sem fararstjóra – enda löngu vitað að sama hvað á gengur, ef Pétur er með í för þá reddast allt á endanum.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.