23 dagar til jóla
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
01.12.2023
kl. 08.56
siggag@nyprent.is
Í dag, 1. desember, eru 23 dagar til jóla. Feykir ætlar að telja niður í jólin og í leiðinni birta skemmtilegar Elf on a shelf hugmyndir sem fólki hefur dottið í hug að gera. Er það ekki bara skemmtilegt:)
Fleiri fréttir
-
Mögulega verða sex listar í boði í Skagafirði
Það er kosningaár en kosið verður til sveitarstjórna þann 16. maí næstkomandi. Feykir hefur örlítið verið að grafast fyrir um framboðs- og listamál í Skagafirði og vonandi verður hægt að segja frá einhverju áður en langt um líður. Augljóslega eru listar ekki klárir enn sem komið er en þó rétt að kanna stöðuna, hverjir hyggjast stíga til hliðar og hvort ný framboð séu í pípunum.Meira -
Samstarfsverkefni innan Safnahúss Skagfirðinga fengu styrki
Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra var haldin á veitingastaðnum Sjávarborg á Hvammstanga síðastliðinn mánudag. Meðal þeirra sem mættu til leiks voru þær stöllur í Safnahúsi Skagfirðinga, Kristín Sigurrós Einarsdóttir héraðsbókavörður og Sólborg Una Pálsdóttir héraðsskjalavörður. Þar veittu þær viðtöku tveimur styrkjum en annars vegar sótti bókasafnið um styrk til að halda málþing í tilefni þess að 18. apríl verða liðin 100 ár frá fæðingu skagfirska rithöfundarins Indriða G. Þorsteinssonar og hins vegar sótti skjalasafnið um styrk til að halda grúsknámskeið. Hvort safn um sig er svo samstarfsaðili að verkefni hins safnsins.Meira -
Einstök heimsfrumsýning
Nemendur 8. - 10. bekkjar í Varmahlíðarskóla heimsfrumsýna verkið Ógleymanlega martröðin, föstudaginn 16. janúar í Miðgarði klukkan 20:00. Það sem gerir þetta að stórmerkilegum viðburði er að handritið er samið af nemendum 10. bekkjar í skólanum og er aðeins þessi eina sýning í boði og því um bókstaflega einstök heimsfrumsýningu að ræða. Leikstjórar eru Íris Olga Lúðvíksdóttir og Ísak Agnarsson. Varmahlíðarskóli hlaut styrk frá Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga til að styðja nemendur 10. bekkjar í að skrifa og þróa handritið, en skriftir hófust rétt eftir árshátíð skólans fyrir ári síðanMeira -
Bingói í Árskóla frestað
Bingó sem vera átti í dag í matsal Árskóla hefur verið frestað af óviðráðanlegum örsökum.Meira -
Ásgeir í Hlíðarkaup var valinn Maður ársins 2025 á Norðurlandi vestra
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 14.01.2026 kl. 09.41 oli@feykir.isFeykir stóð fyrir vali á Manni ársins á Norðurlandi vestra núna í lok árs og byrjun þess nýja og lauk kosningu að morgni mánudagsins 12. janúar sl. Valið stóð á milli níu aðila og var hægt að kjósa á feykir.is. Alls voru það 1.261 sem tóku þátt og kusu. Með 34% atkvæða þá er það Ásgeir Einarsson á Sauðárkróki, eða Ásgeir í Hlíðarkaup eins og hann er jafnan nefndur, sem er Maður ársins 2025 á Norðurlandi vestra.Meira
