9,5 milljónir úr Safnasjóði á Norðurland vestra

Úr aukaúthlutun sem Safnasjóður úthlutaði á dögunum fengu söfn á Norðurlandi vestra alls 9,5 milljónir króna til ýmissa verkefna. Alls var úthlutað 217.367.000 kr. úr sjóðnum: 111 styrkir úr aðalúthlutun safnasjóðs, 13 öndvegisstyrkir og 37 verkefni fengu flýtta aukaúthlutun 2020. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna hlaut hæsta einstaka styrk safna á Norðurlandi vestra.

Aðalúthlutun 2020 - Eins árs styrkir
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna Skráning í Sarp           b. Skráning - almenn      3.000.000
Byggðasafn Skagfirðinga      Samstarf safna á Norðurlandi vestra g. Samstarf viðurkennds safns við aðra safnastarfsemi 800.000
Byggðasafn Skagfirðinga      Safn og samfélag        h. Annað            1.800.000
Byggðasafn Skagfirðinga      Heildaryfirsýn yfir safnkost   b. Skráning - almenn         1.500.000
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi   Skráning - myndskráning      b. Skráning - almenn      900.000
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi   Íslenska lopapeysan - vefsýning            e. Miðlun - stafræn miðlun    500.000
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi   Sumarsýnig Heimilisiðnaðarsafnsins (sérsýning) e. Miðlun - sýning      400.000
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi   Styrkjandi forvarsla   h. Annað            600.000

Flýtt aukaúthlutun 2020
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna Kvöldstundir í baðstofunni í Syðsta-Hvammi           500.000
Byggðasafn Skagfirðinga      Fyrirbyggjandi forvarsla og áætlanagerð vegna sýninga í Glaumbæ     1.500.000
Heimilisiðnaðarsafnið           Efling grunnstoða       1.500.000

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir