Alexandra með tónleika á Hvammstanga
Alexandra Chernyshova, sópran söngkona verður með tónleika í félagsheimilinu á Hvammstanga sunnudaginn 15. mars kl. 16:00.
Tónleikarnir bera yfirskriftina „Rússneskar perlur“, og á efnisskrá eru lög eftir S.Rachmaninov en tilefnið er væntanleg útgáfa geisladisks.
Tónleikarnir voru áður auglýstir á öðrum tíma en vegna óviðráðanlegra aðstæðna voru þeir færðir til.