Allir íbúar Húnaþings vestra sæta úrvinnslusóttkví

Vegna grunsemda um víðtækt smit í Húnaþingi vestra verður að grípa til hertra sóttvarnaraðgerða strax. Frá og með kl. 22:00 í kvöld, laugardaginn 21. mars 2020, skulu allir íbúar sveitarfélagsins sæta úrvinnslusóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Norðurlandi vestra.

Úrvinnslusóttkví er tímabundin ráðstöfun meðan unnið er að smitrakningu. Í henni felst að einungis einn aðili af hverju heimili getur í hvert sinn yfirgefið heimilið til að afla aðfanga. Úrvinnslusóttkvíin gildir ekki um lífsnauðsynlega starfsemi, s.s. hjúkrunarheimili, sjúkrahús og dreifingu og verslun með matvæli og eldsneyti. 
Ofangreind ákvörðun gildir þar til aðgerðarstjórn tilkynnir um annað.

Jafnhliða gildir almennt samkomubann svo sem þegar hefur verið auglýst en þó með þeirri breytingu að hámarksfjöldi aðila sem mega koma saman í Húnaþingi vestra eru 5 aðilar. Höfðað er til samfélagslegrar ábyrgðar allra íbúa til að virða ofangreint og vera alls ekki á ferli að nauðsynjalausu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir