Bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar endurvakin

Mynd af vef stjórnarráðsins/Golli.
Mynd af vef stjórnarráðsins/Golli.

Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi verður endurvakin en þegar hefur verið óskað liðsinnis heilbrigðisstarfsfólks sem reiðubúið er að starfa tímabundið með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins eru þeir sem voru skráðir í bakvarðasveitina áður, og sjá sér enn fært að veita liðsinni, beðnir um að skrá sig þar á ný.

„Fyrirkomulag varðandi bakvarðasveitina er eins og áður. Opinberar heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða sér liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stofnanirnar munu sjálfar hafa beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið á milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa. Til að hægt sé að bæta stofnunum upp kostnaðinn sem hlýst af ráðningu bakvarða, skulu þær halda sérstaklega utan um þann kostnað sem hver ráðning hefur í för með sér. Stofnanir sem um ræðir eru eftirfarandi: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri,“ segir í frétt heilbrigðisráðuneytisins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir