Bandalag gegn eldi í Húnaþingi vestra

Frá Hvammstanga. Mynd: KSE
Frá Hvammstanga. Mynd: KSE

Eins og Feykir greindi frá í vor gerði Húnaþing vestra samkomulag við Eldvarnarbandalagið um að efla eldvarnir á heimilum og í stofnunum sveitarfélagsins. Felur það í sér innleiðingu á eigin eldvarnareftirliti í stofnunum sínum nú í haust.

Skal þetta gert samkvæmt leiðbeiningum, gátlistum og öðrum gögnum sem Eldvarnarbandalagið hefur gefið út. Undirbúningur stendur nú yfir en þann 1. október hyggst sveitarfélagið vera komið með eigið eldvarnareftirlit. Stendur útnefning eldvarnarfulltrúa nú yfir. Hlutverk þeirra er að framkvæma mánaðarlegt og árlegt eldvarnaeftirlit í stofnunum sveitarfélaganna samkvæmt leiðbeiningum og gátlistum Eldvarnabandalagsins.

Munu fulltrúarnir munu fá nauðsynlega fræðslu í september til að geta sinnt hlutverki sínu. Þá munu jafnframt allir starfsmenn sveitarfélaganna fá fræðslu um eldvarnir á vinnustað og heima og er unnið að skipulagningu fræðslunnar. Allir starfsmenn munu fá afhenta handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Slökkvilið sveitarfélaganna þriggja eru virkir þátttakendur í samstarfinu við Eldvarnabandalagið.

Eldvarnabandalagið er samstarfsvettvangur um auknar eldvarnir á heimilum og vinnustöðum. Aðild að því eiga: Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, Félag slökkviliðsstjóra, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, TM hf., Vátryggingafélag Íslands hf. og Vörður tryggingar hf.

Eldri frétt:

Efling eldvarna í Húnaþingi vestra

 

 

Fleiri fréttir