Bílagerði reisir girðingu um gámavöll
Byggðaráð Húnaþings vestra hefur samþykkt að ganga til viðræðna við Bílagerði ehf um reisingu girðingar um gámavöll en tilboð í verkið voru opnuð þann 6. október sl. Bauð Bílagerði 3.892.319 krónur í verkið.
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið.
Bílagerði ehf. kr. 3.892.319-
Reynd að smíða ehf. Tilboð A kr. 4.121.440-
Reynd að smíða ehf. Tilboð B kr. 4.554.953-
Sverrir Sigurðsson kr. 6.203.204-
Steypustöðin Hvammstanga ehf. kr. 4.605.750-
Timburmenn ehf. kr. 3.990.000-