Á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra segir að í dag gengu nemendur og starfsfólk Höfðaskóla á Skagströnd eina mílu, í tilefni dags umburðarlyndis.
Fulltrúar lögreglunnar í umdæminu gengu með hópnum ásamt fríðu föruneyti íbúa bæjarfèlagins.
Lögreglan vill að börnin okkar, og samfélagið allt, þekki lögregluna sér til halds og trausts - með umburðarlyndið að vopni.
Sumarstarfsmaður Feykis, Emma Katrín Helgadóttir, skottast nú um Birmingham-borg og spilar badminton. Reyndar ekki undir merki Feykis heldur Íslands en hún er einn af fulltrúum U19 landsliðs Íslands á All England Junior mótinu þessa dagana.
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina. Reikna má með lífi og fjöri þar. Feykir heyrði í ungum manni sem ætlar að keppa á mótinu og lagði fyrir hann nokkrar spurningar.
Landsvirkjun hélt upp á 35 ára afmæli Blöndustöðvar á laugardaginn og þótti hátíðin heppnast vel. Vígsla Blöndustöðvar árið 1991 markaði mikil tímamót í íslenskri raforkusögu. Blöndustöð er aflstöð Blönduvirkjunar, ein stærsta vatnsaflsvirkjun landsins, og var hún tekin í notkun eftir umfangsmiklar framkvæmdir sem hófust árið 1984.
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 15.07.2026
kl. 10.45 hinrik@feykir.is
Í tilefni Húnavöku lagði Feykir nokkrar krefjandi spurningar fyrir nokkra vel valda Húnvetninga. Fyrstur er Ragnar Z Guðjónsson, sem meðal annars stendur fyrir vefmiðlinum góða: Huni.is.
Framundan er Unglingalandsmót á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Landsmótið er frábært tækifæri til að hittast og styðja við íþróttastarf Tindastóls. Ég hvet félagsmenn, foreldra, stuðningsmenn og velunnara til að skrá sig í sjálfboðaliðastarf fyrir sína deild. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar okkur að skapa góða upplifun fyrir gesti og þátttakendur.
Þó að kosningarnar í ágúst fjalli eingöngu um hvort halda skuli áfram aðildarumsókn þá hverfist umræðan um Evrópusambandið gjarnan um efnahagsmuni, tolla, markaðsaðgang, vexti og verðbólgu. Það er sannarlega eðlilegt að þessi atriði séu skoðuð og metin þegar tekin er afstaða til mögulegrar aðildar Íslands að ES. En Evrópusambandið (ES) er miklu meira og flóknara fyrirbæri. Evrópusambandið er í raun einstakt samstarfsverkefni þjóða sem byggir ekki aðeins á efnahagslegri samvinnu heldur einnig á sameiginlegum gildum um lýðræði, mannréttindi, félagslegt réttlæti og vernd umhverfisins. Frá stofnun þess hefur sambandið þróast úr efnahagsbandalagi ( European Coal and Steel Community, ECSC stofnað 1951/1952) í víðtækt samfélag ríkja sem leitast við að tryggja íbúum sínum öryggi, velferð og jöfn tækifæri.
Það var heldur betur líf og fjör á Hlíðarendavelli dagana 29. júní til 4. júlí, þegar Meistaramót GSS var haldið. Það skiptist á skin, skúrir og vindar þessa viku svo vægt sé til orða tekið. Bleytan varð það mikil að allir ánamaðkar búsettir á nöfunum þurftu að flýja heimili sín og þökktu því flatir og brautir á vellinum og máttu kylfingar hafa sig alla við að týna þá frá púttlínum. En eins og oft áður, þá brast á þetta líka fínasta veður þegar hollinn trítluðu niður 18. holu á lokadegi og fjölmenni var mætt til að fylgjast með lokum móts. Líklegast má telja að ef Skagfirðingar vilja finna viku þar sem er nokkuð öruggt að verði fínasta veður yfir sumarið, þá er það oftast nær vikan eftir Meistaramót GSS!
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Trommarinn Kristján Kristjánsson fæddist á Siglufirði árið 1973 líkt og tvíburabróðir hans Kristinn, nema Kiddi spilar á bassa. Fjölskyldan flutti á Krókinn þegar Stjáni var níu ára og telur hann sig því meiri Króksara en Siglfirðing (!). „Ég er sonur Jóninnu Hjartardóttur hundaræktanda í Hveragerði og Kristjáns Óla Jónssonar, fyrrverandi lögregluvarðstjóra í Lögreglunni á Sauðárkróki, eða Roy eins og hann er kallaður á stöðinni. Ég spilaði á pottana hjá mömmu frá því að ég man eftir mér en færði mig svo yfir í alvöru trommur og slagverk ýmisskonar þegar ég áttaði mig á því að það væri engin framtíð í því að spila á potta endalaust með prjónunum hennar móður minnar,“ segir Stjáni sem nú hamrar húðir og járn hjá Geirmundi.