Fegrunarfélag Hvammstanga boðar til fundar
Í kvöld verður haldinn á Hvammstanga kynningafundur hjá Fegrunarfélagi Hvammstanga en fundurinn verður í félagsmiðstöðinni Orion og hefst kl. 20:00.
Er hér verið að endurvekja gamalt félag sem á sínum tíma byggði í sjálfboðavinnu upp sjúkrahúsgarðinn á Hvammstanga.
Í tilkynningu frá Erlu B Kristinsdóttur er skorað á alla sem hafa áhuga á umhverfismálum að mæta og kynna sér málið.

