• ks

Félagsmenn Bændasamtaka Íslands fá áfram Bændablaðið í dreifbýlum landsins

Mynd tekin af heimasíðu Bændablaðsins
Mynd tekin af heimasíðu Bændablaðsins

Á heimasíðu Bændablaðsins segir að nokkur breyting hafi orðið á dreifingu Bændablaðsins vegna skertrar póstþjónustu. En frá stofnun Bændablaðsins hefur það verið borið út til allra bænda landsins í gegnum fjöldreifingu þar sem pósturinn fer ómerktur á lögbýli. Íslandspóstur tilkynnti undir lok síðasta árs að þjónustu við fjöldreifingu á landsbyggðinni yrði hætt nú um síðustu áramót. Enginn sinnir því slíkri dreifingu eins og sakir standa.

Félagsmenn fá heimsent blað

Íslandspóstur hækkaði enn fremur verulega verðskrá sína á þeirri þjónustu sem fyrirtækið sinnir, þ.e. dreifingu á skráðum sendingum og almennum bréfpósti. Beindi fyrirtækið þjónustu sinni við dreifingu Bændablaðsins í þá átt sem hefði þýtt yfir 260% hækkun á kostnað við dreifingu á einu bretti. Ljóst var að Bændablaðið gat ekki staðið undir slíkum kostnaðarauka.

Þau vilja leggja upp með að skerða ekki aðgengi bænda að Bændablaðinu og muna því halda áfram að senda blaðið til félagsmanna Bændasamtaka Íslands. Fá bændur því blaðið heimsent á sín lögbýli.

Aukið upplag á stórum dreifingarstöðum

Að öðru leyti mun upplag blaðsins verða aukið á stórum dreifingarstöðum hringinn í kringum landið og á blaðið því að vera aðgengilegt frítt í öllum þéttbýliskjörnum landsins, í stórverslunum, sundlaugum, bensínsstöðvum og tilteknum verslunum og veitingastöðum eftir því sem við á. Listi yfir dreifingarstaði Bændablaðsins má nálgast hér og þiggja þau allar ábendingar og tillögur um bætta dreifingu.

Áskrift á viðráðanlegu verði

Þeir sem vilja fá blaðið heimsent geta alltaf skráð sig í áskrift hjá okkur og borgað fyrir sendingargjaldið. Árgjald áskriftar árið 2024 er 17.500 kr. en 13.900 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Hægt er að gerast áskrifandi gegnum með því að smella hér eða með því að hringja til okkar í s. 563-0300. Þeim sem þykir ekki verra að lesa blöð á vefnum er bent á að PDF-áskrift Bændablaðsins er gjaldfrjáls, en hægt er að skrá sig í áskrift á forsíðu Bændablaðsvefsins. Áskrifendur fá þá póst um leið og blaðið kemur út.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir