Gærurnar gáfu góða gjöf til unglinganna

Fulltrúar Gæranna ásamt nokkrum ungmennum. MYND HUNATHING.IS
Fulltrúar Gæranna ásamt nokkrum ungmennum. MYND HUNATHING.IS

Gærurnar, sem er hópur kvenna sem halda úti nytjamarkað á Hvammstanga, gáfu unglingunum í félagsmiðstöðinni Óríon góða gjöf er þær festu kaup á Playstation tölvu og fjarstýringum fyrir félagsmiðstöðina. Hugmyndin af kaupunum æxlaðist þannig að í vetur leitaði kjúklingaráð, hópur unglinga innan skólans, til þeirra með bréf þar sem þær voru spurðar hvort Gærurnar sæju sér fært að aðstoða krakkana með kaup á Playstation tölvu og fjarstýringum. Ekki stóð á svörum frá þeim og hafa þær komið færandi hendi með tölvuna. Fulltrúar kjúklingaráðs, nokkrir krakkar og starfsmenn Óríon tóku við þessari höfðinglegu gjöf á dögunum. Gleðin var mikil hjá unga fólkinu og þakks þau Gærunum kærlega fyrir þessa góðu gjöf.

Nytjamarkaðurinn á Hvammstanga er rekinn undir yfirskriftinni Eins rusl er annars gull. Hafa þær nýtt ágóðann til margvíslegra góðra verka í héraði og þannig haft mikil og jákvæð áhrif á samfélagið. Húnaþing vestra færir Gærunum hjartans þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag til eflingar samfélagsins í gegnum árin. Framlag þeirra er ómetanlegur stuðningur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir