Góð heimsókn í Selasetrið
Í gær og fyrradag komu börn frá Blágarði í heimsókn í Selasetrið á Hvammstanga.
Krakkarnir sýndu selunum mikinn áhuga og fengu m.a. að halda á rostungstönnum. Að lokum sungu þau lagið Vorvindar glaðir fyrir starfsfólk Selasetursins og héldu svo út í sólina á vit ævintýranna. Vill starfsfólk Selaseturs koma á framfæri þakklæti til krakkana fyrir komuna með von um að þau komi fljótt aftur.