Handverksfólk takið eftir!
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
10.02.2010
kl. 08.21
Miðvikudaginn 10. febrúar kl 20:30 ætlar Ásdís Birgisdóttir prjónahönnuður og framkvæmdastjóri Textílsetursins á Blöndósi að vera í Löngufit á Laugarbakka.
Ætlar hún að kynna Textílssetrið og ræða leiðir til að efla samstarf og samvinnu handverksfólks milli svæða á Norðurlandi vestra ásamt hugmyndum um þróun/framleiðslu á vörum sem væru einkennandi fyrir þetta svæði.
Fjölmennum í Löngufit