Hannyrðir hafa fylgt mér alla ævi

Lopapeysur á barnabörnin.
Lopapeysur á barnabörnin.

"Ef ég byrja á einni peysu þá enda ég með að klára sex peysur,“ segir Ásthildur Gunnlaugsdóttir sem segir lesendum frá því hvað hún er með á prjónunum.

Ásthildur er alin upp á Flateyri við Önundarfjörð og flutti til Skagastrandar um vorið 1994 ásamt manni mínum, Guðmundi Finnbogasyni, og þremur börnum. Hún starfar við félagsstarfið á Skagaströnd og sinnir gæslu við sundkennslu þegar hún er í gangi. "Ég er mikið fyrir hannyrðir og prjóna mikið á barnabörnin, þau eru orðin sex að tölu."

Hve lengi hefur þú stund-að hannyrðir?
„Frá því í barnaskóla, á Flateyri var mjög góð handa-vinnukennsla. Þar unnum við með leður, við lærðum að vefa á vefstól, kennsla í að prjóna og sauma út, hannyrðir hafa fylgt mér alla ævi.

Hvaða handavinna þykir þér skemmtilegust?
„Mér finnst nú flest handavinna skemmti-leg, get ekki gert upp á milli, enda er handavinna mjög fjöl-breytt og gefandi. Ég er í Bútasaumsklúbbnum Bútós sem hefur gefið mér mikið í gegnum tíðina.“

Hverju ertu að vinna að um þessar mundir?
„Ég er að prjóna lopapeysu fyrir eitt barnabarnið og einnig ungbarnapeysu, ásamt því að hekla prufur fyrir félagsstarfið.“

Hvar fékkstu hugmyndina?
„Ég skoða mikið af uppskriftum og geri ýmis sýnishorn fyrir konurnar í félagstarfinu í saumi, prjóni og hekli og þá dettur maður niður á eitthvað áhugavert og þá er ekki aftur snúið. Til dæmis sá ég munstur á lopapeysu með Liverpool merkinu og prjónaði eina í afmælisgjöf, en það tók tíma.“

Hvaða handverk, sem þú hefur unnið, ert þú ánægðust með?
„Það sem ég er að gera í hvert sinn, ætli bútasaums-teppið standi ekki upp úr.“

Eitthvað sem þú vilt bæta við?
„Það er mjög róandi og gott að slaka á þegar ég er að prjóna eða gera aðra handavinnu, þá er gott að hlusta á útvarpið eða á sögur.“

/KBS

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir