Ingvi Rafn ráðinn þjálfari Kormáks Hvatar

Meistaraflokksráð Kormáks Hvatar hefur ráðið Ingva Rafn Ingvarsson sem spilandi þjálfara liðsins leiktímabilið 2021 í stað Tryggva Guðmundssonar sem leystur var undan samningi fyrir stuttu. Í tilkynningu frá ráðinu segir að Ingva þurfi ekki að kynna í löngu máli fyrir íþróttaaðdáendum á Norðurlandi vestra, enda meðal leikja- og markahæstu leikmönnum í sögu Kormáks Hvatar.

„Ingvi mun leika með liðinu í sumar, enda hefur kappinn farið hvínandi af stað í vorleikjunum og leitt línuna í Lengjubikarnum af miklum krafti. Þökk sé öflugum sóttvarnaraðgerðum undanfarnar vikur fer að líða að því að hægt verði að hefja leik í sumarmótunum. Fyrsta verkefni nýs þjálfara verður í bikarkeppni KSÍ sem áætlað er að fari fram undir lok aprílmánaðar,“ segir í tilkynningunni en penninn hefur verið á lofti á skrifstofu Kormáks Hvatar og von á fleiri fréttum fyrr en varir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir