Ísland grænt á ný, eitt Evrópuríkja

COVID-19: Ísland grænt á ný, eitt Evrópuríkja - myndSóttvarnastofnun Evrópu (ECDC)
COVID-19: Ísland grænt á ný, eitt Evrópuríkja - myndSóttvarnastofnun Evrópu (ECDC)

Ísland er aftur orðið grænt á korti sóttvarnastofnunar Evrópu, eitt Evrópuríkja en stofnunin uppfærir á hverjum fimmtudegi kort sem sýnir nýgengi COVID-19 smita í Evrópu. Á vef heilbrigðisráðuneytis kemur fram að græni liturinn sé til marks um að 14 daga nýgengi smita sé minna en 25 smit á hverja 100.000 íbúa.

„Þetta er ánægjulegur vitnisburður um að sóttvarnaaðgerðir hér á landi duga vel, við erum á réttri leið og síðast en ekki síst fjölgar nú jafnt og þétt í hópi bólusettra hér á landi,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Samkvæmt fréttinni hafa rúmlega 95.000 einstaklingar fengið bólusetningu hér á landi nú og þar af eru rúmlega 28.000 fullbólulsettir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir