Katrín Sif Sigurgeirsdóttir vill leiða Pírata í Norðvesturkjördæmi.

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi formaður kjaranefndar ljósmæðrafélags Íslands vill leiða Pírata í Norðvesturkjördæmi. Katrín Sif er fjörutíu og fimm ára hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, með diplómu í opinberri stjórnsýslu, gift Aðalsteini Ingólfssyni og samtals eiga þau átta börn. Sem stendur starfar hún sem ljósmóðir í mæðravernd og sinnir heimafæðingaþjónustu.

Katrín Sif var formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands og sat í stjórn félagsins á árunum 2017-2019. Katrín leiddi á þeim tíma mjög harða kjarabaráttu þar sem áhersla var lögð á að allt skyldi vera uppi á borðum, á gagnsætt ferli með sanngirni og réttlæti að leiðarljósi. Hún var einnig í samstarfsnefnd BHM og Ljósmæðrafélags Íslands um endurnýjun stofnanasamninga á heilbrigðisstofnunum frá ársbyrjun 2017-2020.

Félagsmál hafa verið Katrínu Sif hugleikin og hefur hún verið ötul í baráttu fyrir lögleiðingu nýrrar stjórnarskrár, og er þátttakandi í Samtökum kvenna um nýja stjórnarskrá sem og í Stjórnarskráfélaginu.

„Ég býð mig fram í Norðvesturkjördæmi vegna þess að ég tel að reynsla mín og kraftar muni nýtast því kjördæmi einna best á næsta kjörtímabili. Ég á ættir að rekja vestur og hef starfað þar sem ljósmóðir með hléum undanfarin sjö ár bæði á Patreksfirði og á Ísafirði. Ég hef bróðurpart starfsævinnar unnið utan höfuðborgarsvæðisins svo sem á Heilbrigðisstofnunum Vestfjarða, Suðurlands og Suðurnesja. Ég sótti háskólanám í Háskólann á Akureyri. Ég er, þrátt fyrir að vera fædd á malbikinu, í hjarta mínu algjör dreifbýlisstúlka. Ég var sem barn í sveit á sumrin í Skagafirði og þar á ég ættingja.

Ég veit hversu mikilvægt það er fyrir íbúa kjördæmisins að fá öflugan talsmann fyrir traustu aðgengi að heilbrigðis- og félagsþjónustu á landsbyggðinni til liðs við sig. Ég hef komið víða að í heilbrigðiskerfinu, bæði sem þjónustuveitandi, þjónustuþegi og aðstandandi. Ég hef staðið ölduna í því kerfi í gegnum súrt og sætt, hrun og faraldur og þannig séð, heyrt og lært. Allt er þetta dýrmæt reynsla sem ég er tilbúin að nýta mér á vettvangi Alþingis til að vinna að góðu og skilvirku heilbrigðiskerfi," segir Katrín Sif, sem velur að bjóða sig fram í Norðvesturkjördæmi.

Hún segir að Píratar á Íslandi séu ungt afl sem hefur tekið út mikinn þroska og vöxt á stuttum tíma, afl sem er í stöðugri þróun og geti þar af leiðandi boðið upp á mikilvæga aðlögunarhæfni og lestur í nútímaþarfir samfélagsins. Píratar byggi á góðum þverskurði samfélagsins og grunnstefna þeirra standi vörð um réttindi allra hópa. 
Katrín Sif telur sig eiga mikla samleið með Pírötum: „Áhersla Pírata á að efla og vernda réttindi jaðarsettra hópa í samfélaginu höfðar sérstaklega vel til mín því ég brenn fyrir samfélagi þar sem allir hafa tækifæri til að sitja við sama borð. Ég trúi því að ef grunnurinn er traustur, þ.e. ef við hlúum vel að börnunum okkar og veitum þeim öryggi og fullnægjandi vaxtar- og þroskaskilyrði, andleg, félagsleg og líkamleg, þá komum við í veg fyrir ansi víðtæka þjónustuþörf í heilbrigðiskerfinu þegar fram í sækir. Ég tel að ég sé vel til þess fallin að geta verið þessum málaflokkum góður málsvari, ég hef til þess traustan grunn, reynslu, þekkingu og þroska."

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir