Kókoskúlur og Chow Mein
Matgæðingar vikunnar í tbl. 15, 2023, voru Hekla Eir Bergsdóttir, aðflutt að sunnan, og Óli Björn Pétursson, fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Þau eru bæði mjólkurfræðimenntuð og starfa í mjólkursamlagi KS, Hekla sem gæðastjóri og Óli Björn sem aðstoðar framleiðslustjóri. Þau eiga saman tvö börn, Birni Helga, fæddan 2020 og Kristínu Petru, fædd 2023.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.895 kr. á mánuði m/vsk (2.608 án/vsk).
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 1.990 kr. á mánuði m/vsk. (1.793 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 555 kr. vikan m/vsk. (500 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Sigríður Fjóla skaraði fram úr
Útskriftarhelgi Reiðmannsins fór fram um liðna helgi á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Á laugardag kepptu nemendur sem höfðu náð bestum árangri í sínum hópum til úrslita. Reynisbikarinn hlýtur sá er efstur stendur úr Reiðmanninum II og í ár var það Sigríður Fjóla Viktorsdóttir á Prins frá Syðra-Skörðugili, sem reyndist hlutskörpust.Meira -
Birna Ágústsdóttir sett tímabundið sem sýslumaður á Vesturlandi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 02.05.2024 kl. 08.10 oli@feykir.isGuðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumann Norðurlands vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní nk. til og með 31. maí 2025. Tilefni setningarinnar er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti. Birna mun gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili.Meira -
Grunnskólinn austan Vatna komst bara víst í úrslit í Skólahreysti
Eitthvað klikkuðu reikningskúnstir Feykis í nótt þegar birtar voru niðurstöður í Skólahreysti. Þá var nánast fullyrt að Grunnskólinn austan Vatna í Skagafirði hefði naumlega orðið af sæti í úrslitum keppninnar skemmtilegu – en viti menn; í hádeginu í dag var tilkynnt á Facebook-síðu Skólahreysti að Grunnskólinn austan Vatna hefði sannarlega tryggt sér sæti í úrslitunum. Norðurland vestra er því með þrjá skóla af tólf í úrslitum Skólahreysti og ef það var snilld að eiga tvo skóla af tólf miðað við höfðatölu í nótt hversu geggjað er þá að eiga þrjá skóla í úrslitunum!?Meira -
Hermann Sæmundsson ráðuneytisstjóri fylgir Sigurði Inga sem skugginn
Fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra og Skagfirðingurinn Hermann Sæmundsson hafa gert með sér samkomulag um flutning Hermanns í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins og mun hann taka við frá og með 1. maí 2024. Hemmi Sæm, sem er sonur heiðurshjónanna Sæmundar Hermannssonar frá Ysta-Mói í Fljótum og Ásu Helgadóttur, sem bæði eru látin, er alinn upp á Skagfirðingabrautinni á Króknum.Meira -
Grillaður fiskur og tiramisu
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Í matinn er þetta helst, Lokað efni 01.05.2024 kl. 12.40 siggag@nyprent.isMatgæðingar vikunnar í tbl 24 í fyrra voru Ágúst Andrésson, þá forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS, og Guðlaug Kristín Pálsdóttir, sérfræðingur á Brunavarnasviði HMS. Ágúst og Guðlaug búa saman á Sauðárkróki og er Gústi borinn og barnfæddur í Skagafirði, nánar tiltekið á Bergstöðum, en Gulla ólst upp í Reykjavík og fluttist á Sauðárkrók í miðju Covid árið 2020. Þau erum eigendur að Norðar ehf. sem m.a. flytur inn vín frá Moldóvu og Ítalíu og hafa einnig staðið í eigin veitingarekstri og hafa mjög gaman af því að ferðast og borða góðan mat.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.