Köld þorrahelgi framundan
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
29.01.2010
kl. 08.14
Eftir langar hlýindakafla er heldur betur breyting þar á nú í morgunsárið en mælirinn sýndi - 8 gráður á Sauðárkróki. Spáin gerir ráð fyrir hægri norðlægri eða breytilegri átt og víða bjartviðri. Frost 0 til 7 stig.
Hvað færð á vegum varðar er hálka eða hálkublettir á öllum helstu leiðum.
Fleiri fréttir
-
Vatnsnes Trail Run Utanvegahlaup
Einn af fjölmörgum áhugaverðum viðburðum á Eldi í Húnaþingi er „Vatnsnes Trail Run” sem er utanvegahlaup í Húnaþingi vestra. Hlaupið fer fram á föstudaginn 25.7. Boðið er upp á þrjár vegalengdir: 20+ km, 10km og fjölskylduhlaup. Í 10 km og 20+ km hlaupunum verður hlaupið frá Félagsheimilinu á Hvammstanga fallega leið upp í Kirkjuhvamm og svo halda leiðirnar áfram upp fjallið. í 1,5 km fjölskylduhlaupinu er einnig hlaupið frá Félagsheimilinu á Hvammstanga. Skemmtilegur viðburður fyrir náttúruunnendur og hlaupara á öllum getustigum.Meira -
Frábært framtak á folf-vellinum á Hvammstanga
Sagt er frá því á vef Húnaþings vestra að nú á dögunum tóku nokkrir vaskir menn sig saman og smíðuðu palla á folf-völlinn á Hvammstanga. „Það er ánægjulegt að sjá svona frumkvæði hjá þessum óeigingjörnu sjálfboðaliðum. Sveitarfélagið færir öllum hlutaðeigandi sínar bestu þakkir,“ segir í fréttinni.Meira -
Ingibergur bar sigur úr býtum á Opna Húnavökumótinu
Opna Húnavökumót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi í samstarfi við Borealis fór fram laugardaginn 19. júlí í mildu veðri á Vatnahverfisvelli. Alls voru 27 keppendur skráðir til leiks og var ræst út stundvíslega kl. 10 af formanni klúbbsins, Eyþóri Franzsyni Wecher, og mótastjóra, Valgeiri M. Valgeirssyni. Leiknar voru 18 holur í punktakeppni með forgjöf í einum flokki.Meira -
Framkvæmdir við Vatnsdalsveg dragast saman
Vegagerðin hefur ákveðið breytingar á framkvæmdum við Vatnsdalsveg. Upphaflega var áætlað að endurbyggja samtals 14,9 kílómetra kafla frá Hringvegi og suður að afleggjara að Undirfellsrétt en síðar var ákveðið að stytta framkvæmdakaflann niður í 13 kílómetra. Nú áformar Vegagerðin að kaflinn verði níu kílómetrar og er ástæðan sögð verða boð um niðurskurð hjá stofnuninni. Byggðarráð Húnabyggðar mótmælir þessari ákvörðun harðlega og krefst svara frá Vegagerðinni og ráðherra samgöngumála.Meira -
Þurfum ekki neitt
Í sumar hafa Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson, einnig þekktur sem CeaseTone, verið á músíkkölsku ferðalagi. Parið hefur marga músíkfjöruna sopið, þau hafa flakkað um landið og flutt lög í stórum sölum og litlum kirkjum, fyrir fólk á öllum aldri á blíðviðriskvöldum og í óveðri. Núna er komið að Sauðárkrókskirkju í kvöld, 21. júlí, kl: 20:00.Meira