Ljósmyndasýning á Hvammstanga
Búið er að opna ljósmyndasýningu á Hvammstanga að Höfðabraut 6, með myndum húnvetnsku ljósmyndaranna Péturs Jónssonar, Jóns Eiríkssonar, Jóns Sigurðssonar og Bjarna Freys Björnssonar.
Þessi sýning var áður sett upp í Selasetri Íslands og í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á Listahátíð 2009. Það er Menningarráð Norðurlands vestra og Sparisjóður Hvammstanga sem styrkja þessa sýningu.