Ljósmyndasýningin - Náttúra og landslag Norðurlands vestra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
14.06.2012
kl. 13.54
Ljósmyndasýningin - Náttúra og landslag Norðurlands vestra verður opnuð í Grunnskólanum Hofsósi á Jónsmessuhátíðinni um helgina. Þar verða til sýningar myndir eftir ljósmyndarana Arnar Viggósson og Jón Hilmarsson.
Opnun sýningar er sem hér segir:
- Föstudaginn 15. júní frá kl. 14:00 til 18:00
- Laugardaginn 16. júní frá kl. 13:00 til 18:00
- Sunnudaginn 17. júní frá kl. 11:00 til 15:00
