Lóuþrælar með tónleika í kvöld
Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi verða með aðventutónleika í kvöld 17. des í Félagsheimili Hvammstanga. Tónleikarnir eru styrktir af Sparisjóðnum Hvammstanga og Menningarráði Norðurlands vestra.
Söngstjóri Lóuþræla er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er aðgangur ókeypis. Eftir tónleika verður boðið upp á súkkulaði og smákökur. Hjómdiskar Lóuþræla verða boðnir til sölu á staðnum.