Matvælasjóður stofnaður til að efla nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu

Íslenskt grænmeti. Mynd:Facebooksíðan Íslenskt.is
Íslenskt grænmeti. Mynd:Facebooksíðan Íslenskt.is

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, lagði í gær fram í ríkisstjórn frumvarp til laga um stofnun Matvælasjóðs en markmiðið með að setja hann á fót er að efla nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu. Stofnun sjóðsins er hluti af öðrum áfanga aðgerða til að bregðast við áhrifum COVID-19 og verður 500 milljónum króna varið til stofnunar hans á þessu ári.

Í frétt á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins segir að samþykkt hafi verið að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi. Unnið hefur verið að stofnun sjóðsins undanfarið ár í ráðuneytinu en ákveðið var að flýta vinnu við að setja sjóðinn á fót sem hluta af aðgerðum til að skapa efnahagslega viðspyrnu þegar þetta tímabundna ástand er gengið yfir.

Matvælasjóður mun hafa það hlutverk að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaði og sjávarútvegi. Hann mun styrkja verðmætasköpun við framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu matvæla og verður við úthlutun sérstök áhersla lögð á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og almennar aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.

Matvælasjóður verður til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi. Til stofnunar sjóðsins verður varið 500 m.kr. sem verður úthlutað á þessu ári. Við úthlutun þeirra fjármuna en einnig við frekari stefnumótun fyrir hinn nýja sjóð verður þess gætt að skipting fjármagns til landbúnaðar og sjávarútvegs verði með sambærilegum hætti og verið hefur.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að með því að setja á fót Matvælasjóð sé verið, í krafti nýsköpunar og þróunar, að hvetja til aukinnar verðmætasköpunar í landbúnaði og sjávarútvegi til hagsbóta fyrir allt samfélagið. „Við Íslendingar erum enda matvælaþjóð. Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands. Því er stofnun Matvælasjóðs, með áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælaframleiðslu,“ segir Kristján Þór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir