Minnkað rennsli frá kaldavatnstanki á Hvammstanga

Undanfarna daga hefur vatnshæðin í kaldavatnstanki fyrir Hvammstanga farið lækkandi. Ástæða þess er sú að minna vatn kemur frá Grákollulind auk þess sem kaldavatnsnotkun er óvenjumikil.

Í tilkynningu frá veitustjóra á vef Húnaþings vestra kemur fram að til að sporna við frekari lækkun vatnshæðar hafi verið brugðið á það ráð að minnka rennslið frá tanknum sem hefur leitt til þess að vatnshæðin í tanknum fer nú hækkandi. Aðgerðin gæti hins vegar haft þau áhrif að inntaksþrýstingur inn í hús minnki.

Verði þrýstingur of lágur er fólki bent á að tilkynna tilkynna það til veitustjóra í síma 831-7100.

Eftirfarandi sparnaðarráð er gott að hafa í huga:

  • Tryggið að neysluvatnskerfin séu í lagi og að aftöppunarstaðir leki ekki vatni, t.d. hvort að það sé sírennsli í salernum, lekir kranar o.s.frv.
  • Eigendur atvinnuhúsnæðis athugi hvort kalda vatnið leki að óþörfu.
  • Látið kalda vatnið ekki renna til að ná fram kælingu. Látið renna í könnur og kælið vatnið í ísskápnum. Þetta kallar á fyrirhyggju þannig að alltaf sé til nægilegt kalt vatn í ísskápnum.
  • Látið vatnið ekki renna meðan verið er að bursta tennur. Sama á við um rakstur.
  • Notið minna vatn við bílaþvott með því að skola mesta skítinn af bílnum fyrst en sápuþvo á eftir með svampi og vatni í fötu og skola bílinn síðan í framhaldi af því.

Veitustjóri vonast til að með samstilltu átaki og virkum sparnaðarráðum þurfi ekki að hafa áhyggjur af beinum vatnsskorti og er því mikilvægt að allir leggist á eitt í þessum efnum.

Fleiri fréttir